Um Libra lögmenn

Libra lögmenn hafa aðsetur við Tjarnargötu 36 í Reykjavík.
Libra lögmenn veitir alhliða lögfræðiþjónustu en viðskiptavinir stofunnar eru allt frá einstaklingum til stórfyrirtækja, fjármálastofnana, sveitarfélaga og stofnana ríkisins.
Verkefni stofunnar eru margvísleg en sérsvið hennar er á sviði fyrirtækjaréttar og ber þar helst að nefna málefni er varða:
- banka- og verðbréfamarkaðsrétt
- félagarétt
- samkeppnisrétt
- verktaka- og útboðsréttur o.fl.
Lögmannsstofan tekur einnig að sér skjalagerð og ráðgjöf vegna kaupa, sölu og endurskipulagningar fyrirtækja, sem og vegna annarra atriða er tengjast fyrirtækjarekstri. Þá hafa lögmenn stofunnar mikla reynslu af veðrétti, vátryggingarétti, skuldaskilarétti, stjórnsýslurétti, sveitarstjórnarétti, sem og skipulags- og byggingarmálum. Á stofunni starfa lögmenn sem eru með réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi, Landsrétti og Hæstarétti Íslands.

Lögmannsstofan leggur mikið upp úr trúnaði við viðskiptavini sína. Lögmenn stofunnar eru bundnir trúnaði um allt sem þeir verða áskynja í störfum sínum og fara með allar upplýsingar um viðskiptavini sem trúnaðarmál.


